Fasteignakaup kynna 77,5 fm íbúð á 2. Hæð (efri) við Hringbraut í Reykjavík. Aðeins fjórar íbúðir í stigagangi. Sameign er í góðu lagi og í kjallara er sameiginlegt þvottahús og stórt þurrkherbergi. Tvö 10 fm geymsluherbergi í kjallara sem nota má sem herbergisaðstöðu. Lýsing eignar: Hol er með innbyggðri fatageymslu. Gengið er í allar vistaverur frá holi. Eldhúsið er með upprunalegum en snyrtilegum innréttingum - gluggi í norður. Baðherbergi er með baðkari - gluggi á baðherbergi, svefnherbergi á norðurhlið en í suður eru stofa með hornglugga og hjónaherbergið . Innréttingar upprunalegar en eigendur hafa kappkostað að halda þeim við í upprunanlegri mynd. Gólfefni: Parket nema dúkur á baði. Búið er að skipta um gler - hljóðeinagrun í gleri. Nýleg rafmagnstafla er fyrir húsið. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Ef þú vilt selja fasteignina þína, þá vantar okkur allar gerðir fasteigna á söluskrá, við veitum sérlega vönduð vinnubrögð og hátt þjónustustig. Hringdu í síma 515 0500 og fáðu upplýsingar um eignina þína !
___________________________________________________________________________________________________
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% af fasteignamati. 2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 1,5% af höfuðstól skuldabréfs. 3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - kr. 2000 af hverju skjali. 4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari uppl. á t.d. heimasíðu lánastofnana. 5. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.




