Álfaskeið, Hafnarfjörður
Fasteignakaup kynnir 111,2 fm, fimm herbergja endaíbúð á 3ju hæð í fjlölbýlishúsi við Álfaskeiði í Hafnarfirði. Lýsing eignar: Rúmgóður inngangur, flísalagt
hol með góðum skápum.
Eldhús með ljósri beyki innréttingu, flísum milli skápa,
borðkrók og flísum á gólfi. Björt
stofa með parketi á gólfi parketi á gólfi og útgengi út á
svalir. Á svefnherbergisgangi eru
þrjú svefnherbergi öll með parketi á gólfum og skápum. Auka
svefnherbergi hefur verið komið snyrtilega fyrir á kostnað borðstofu, en auðvelt er að fjarlægja það aftur.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með skáp og lítilli innréttingu, baðkar og gluggi. Í kjallara er gott sameiginlegt þvottahús auk sérgeymslu. Viðhald er fyrirhugað að utan, peningar til í hússjóði.
Hér er um að ræða vel staðsett á barnvænum stað í Hafnarfirði þar sem stutt er í skóla og aðra þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Valtýsson 865 3022 og e-mail: gudmundur@fasteignakaup.is